Mannvit bætti rafbílum í bílaflotann og samdi við Kolvið um plöntun trjáa til jöfnunar á móti bensínbílum félagsins sem ekki hefur verið skipt út.
Fjárframlag að upphæð 350 þúsund krónur veitt til Mæðrastyrksnefndar Kópavogs í stað þess að senda út hefðbundin jólakort til viðskiptavina.
Sjálfbærni jarðvarmavirkjunarinnar var metin út frá nýjum matslykli á sjálfbærni sem unninn var í samstarfi við orkufyrirtæki og stofnanir undir verkstjórn Mannvits.
Framkvæmd sjálfbærnistefnu, áskoranir og reynslusögur innlendra og erlendra sérfræðinga voru viðfangsefni á morgunverðarfundi Mannvits um innleiðingu sjálfbærnistefnu hjá fyrirtækjum.
Rannsóknarmiðstöð í stjórnarháttum hefur veitt Mannviti viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum 6 ár í röð.
Mannvit sér um verkfræðiráðgjöf stöðvarinnar sem verður stórt skref í umhverfismálum á höfuðborgarsvæðinu þegar urðun á heimilisúrgangi verður hætt.
Framkvæmdir á Marriott Edition hótelinu hófust þegar Ístak byrjaði að steypa grunninn að byggingunni.
HRV, sem er í eigu Mannvits og Verkís, var með alhliða samning við Hydro um hönnun, innkaup og umsjón á hluta framkvæmdarinnar.
Félagið vill leggja sitt að mörkum við að stuðla að sjálfbærni íslensks samfélags og sendir árlega framvinduskýrslu til Global Compact.
Svend Hardenberg, framkvæmdastjóri Mannvits í Grænlandi, flutti erindi um áhrif vatnsaflsvirkjunarinnar í Ilulissat, Grænlandi á samfélagið.
Sérfræðilæknar á Landspítala útskýrðu áhrif myglu á heilsufar, ásamt erindum frá arkitekt og verkfræðing um aðgerðir og leiðir til að eiga við rakavandamál.
Þraut Mannvits var að smíða brú úr 1 kg af spaghetti og brúa 50 cm bil. Lið FB smíðaði sterkustu brúna, sem þoldi 1.8 kg., en MH sigraði heildarkeppnina.
Mannvit lék stórt hlutverk við undirbúning, hönnun og byggingu þessarar glæsilegu 90 MW jarðhitavirkjunar Landsvirkjunar.
Göngin sem eru 7.9 km löng eru mikil samgöngubót fyrir Austfirðinga og stytta leiðina milli Eskifjarðar og Neskaupsstaðar um 4 km. Mannvit vann með Vegagerðinni að gangagreftri, styrkingum, lagnakerfum fyrir fráveituvatn, veguppbyggingu innan og utan ganga.
Samtök verslunar og þjónustu og Mannvit efndu til fræðslufundar á Grand Hótel um áhrif myglu á hús og híbýli, og réttarstöðu fasteignaeigenda.
Mannvit skuldbindur sig til að draga úr losun gróðurhúsa-
lofttegunda og lágmarka neikvæð umhverfisáhrif með markvissum aðgerðum í takt við markmið félagsins og Global Compact sáttmála SÞ.